Fréttir

sleepover í Kirkjunni 20.jan.

Skrifað 18.1.2012 kl.11:36

SLEEPOVER.... JIBBÝJEY !
Þá er komið að hinu langþráða sleepover/vökunótt í Kirkjunni okkar. Föstudaginn 20.jan.
Skjaldberar og Útverðir ásamt unglingastarfi Kirkjunnar verða með sameiginlegt sleepover - hressingargjald verður 500.kr á mann.  Við ætlum að breyta eldhúsi Kirkjunnar í pizzastað um nóttina, jamm við verðum að nærast. Nammi er leyfilegt en það gildir sú regla að gefa með sér :o) Orkudrykkir eru BANNAÐIR.
Endilega takið með ykkur borðspil að heiman, bara merkja þau vel.

Við mætum hress og kát í Fíladelfíu rétt fyrir kl.20. og byrjum fjörið á unglingasamkomu í stóra salnum, um kvöldið/nóttina verðum við með ýmsar stöðvar víða um húsið þar sem boðið verður upp á skemtilega afþreyingu td. playstation, spil, bíó, leikir og margt fleirra.

þar sem við verðum örugglega misþreytt - sumir verða alls ekki þreyttir og sumir ofurþreyttir, þá verða allir að koma með svefnpoka/kodda með sér. Við verðum með svefnaðstöðu í barnaherbergi Kirkjunnar, fyrir þá sem þurfa að leggja sig.
Kl. 09. á laugardagsmorgun biðjum við ykkur foreldra að sækja börn ykkar, við biðjum ykkur um að mæta á réttum tíma - því við gamla fólkið verðum alveg örugglega komin með tóm batterí og þurfum því að fara heim í hleðslu :o)

Þetta verður spennandi nótt - skráning fer fram á royal rangers fundi miðvd. 18.jan og í s:698-9485 (Jóhanna)
Foringjar Royal rangers og Unglingaleiðtogar Fíladelfíu Kirkjunnar.

<<febrúar 2012>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728291234
567891011

Næstu atburðir

29.2.2012
Royal rangers fundur í dag kl.18 - 19.

Í dag verður síðasti saumafundurinn okkar allir að mæta sem eru a&et...