Áramótaannáll Royal rangers í Rvk árið 2011.
Í janúar fórum við af stað að loknu jólafríi af fullum krafti. Fljótlega eftir áramótin fóru krakkarnir okkar á námskeið hjá videodeild kirkjunnar og í framhaldi af því fóru þau að vera á video –myndavélum á sunnudags samkomum í kirkjunni ásamt því að taka þátt í samkomuþjónustunni. Bjóða fólk velkomið á samkomur og afhenda því kirkjudagskránna. Þið stóðuð ykkur afburðavel krakkar og voruð Royal rangers til mikils sóma. Krakkarnir eru enn að þjóna á myndavélum – þau hafa tekið stöðu sína í heilt ár. Drottinn blessi ykkur krakkar.
Í febrúar mönuðu krakkarnir foringjana til að fara í sjósund í fimbulfrosti og snjó bbbrrrr – frekar kalt og auðvitað tókum við áskoruninni og allir mættu í sjósundið líka nokkrir foreldrar. Flottir foreldrar það, þetta var mjög skemtileg áskorun – takk fyrir hana krakkar.
Í mars fóru svo Skjaldberar og Útverðir í heimsókn í Stykkishólm, þetta verkefni okkar hét Kirkja að styðja Kirkju. Við fórum á laugardags morgni og hittum Royal rangers hópinn á útivistarsvæðinu í Hólminum og eyddum öllum deginum í skóginum að læra ýmislegt og leika okkur, einnig fórum við í útihúsin hjá foringjunum í Hólminum og skoðuðum kindur, hænur, endur og fengum að gefa þeim. Um kvöldið var svo kvöldvaka í Kirkjunni í umsjá Royal rangers í rvk, þar sem allir fóru á kostum og kl.22. var svo hrúgað í bílana og Royal rangers krökkunum í Hólminum keyrt heim – Jú því útivistartíminn er virtur hjá okkur. Á sunnudagsmorgninum fórum við öll í sund og tókum svo virkan þátt í samkomunni kl.13 þar lásum við upp úr Biblíunni, töluðum og tókum undir sönginn af miklum krafti – svo var keyrt heim trallandi í bílunum.
Í apríl fórum við öll að undirbúa Royal rangers Reykjavík daginn á Lindinni. Við ákváðum að safna áheitum á okkur sem hóp og hjóla 77.km til styrktar Lindinni kristilegu útvarpi. Við viljum að allir krakkar/unglingar geti fengið að heyra um Jesú og Lindin er að segja frá honum. Við söfnuðum áheitum hjá fjölskyldum okkar, fyrirtækjum og á öllum mögulegum stöðum – áheitin stóðu í rúmum 220 þúsund krónum daginn sem við hjóluðum. Við fengum nánast öll íslensk veður sem til eru hjá okkur, við byrjuðum í logni og rigningu og enduðum í snjókomu og frosti síðasta spottann. Endastöðin okkar var í Hafnarfirði heima hjá Gumma og Jóhönnu þar fengu allir handklæði þurra sokka – teppi til að hlýja sér í og aldrei hafa jafn margir farið í einu í fótabað í baðkarinu í suðurholtinu. JÁ þegar mest lét voru 5. Í einu í fótabaðinu að ná upp réttu hitastigi í fæturnar. Svo skelltum við pulsum í pottinn og kaffi á könnuna og allir fengu sér næringu og höfðu mjög gaman af foreldrar/systkini jafnt sem hjólahetjurnar okkar.
Þann 28.mai var svo haldið upp á afmæli Kirkjunnar okkar með mikilli hátíð sem hófst á bílastæði Kirkjunnar með skrúðgöngu þar sem Royal rangers fór fremst sem fánaberar og gengu í búningum sínum – skrúðgangan fór upp á Klambratún þar sem mikil útihátið fór fram með skemtiatriðum og leiktækjum þar sem Royal rangers krakkar hjálpuðu mikið til.
Kotmótinu megum við nú ekki gleyma það er haldið árlega í Fljótshlíðinni um Verslunarmannahelgina þar var Royal rangers með mikið starf meðal barna og unglinga og elstu unglingarnir okkar hjálpuðu mikið til þar og voru til mikils sóma.
Strax í september byrjuðum við fundina okkar af fullum krafti og margir nýir krakkar bættust í hópinn sem er alveg frábært – því fleirri – því betra. Núna í haust höfum við lært margt nytsamlegt og skemtilegt.
Í oktober Fóru Skjaldberar og Útverðir austur í Öræfi á mót sem kallaðist Útivistarævintýri. Við fórum á stórri rútu ásamt krökkum frá Hólminum og Hveragerði en fyri austan biðu krakkar úr sveitinni ásamt krökkum frá Vestmannaeyjum. Fyrir austan gistum við í tjöldum inni í gamalli hlöðu og aðstaðan okkar var gamalt fjárhús, Útverðirnir sváfu úti í jöklatjöldum. Þessi ferð var algert ævintýri við fengum brjálað veður og yndislegt veður. Fórum á jökulinn í klifur og lærðum allt um það og margt annað skemtilegt. Það var mjög þreyttur en ánægður hópur sem kom heim á sunnudeginum.
Í nóvember fórum við af stað með verkefnið Frá hjarta til hjarta – gleðileg jól. Þetta verkefni fólst í því að við bökuðum smákökur saman, fengum gefins hátíðarkaffi frá Ojohnsen&Kaaber og pökkuðum þessu saman í jólagjöf ásamt heimatilbúnu jólakorti frá okkur. Þessa gjafir fórum við svo með heim til eldri borgara sem við vissum að væru einir og mættu sín minna. Krakkarnir fóru heim að dyrum í búningum sínum ásamt foringja og gáfu gjafir og óskuðu gleðilegra jóla. Þetta verkefni blessaði marga og ekki síst okkur sjálf.
Elsku krakkar og foreldrar þetta ár hefur verið einstakt og því er algerlega ykkur að þakka. Við þökkum ykkur fyrir samstarfið og allar gleðistundirnar sem þið hafið veitt okkur á árinu.
Megi góður Guð gefa okkur blessunarríkt nýtt ár.
Drottinn blessi ykkur og varðveiti.
Foringjarnir í Royal rangers Reykjavík